Saga kórsins
Íslenski kórinn í Gautaborg tók til starfa haustið 1989. Raunar höfðu nokkrir
félagar hist vorið áður og reynt að koma á skipulegum kórsöng, en það var
fyrst um haustið sem verulegur skriður komst á málið.
Haft var samband við Kristin og Tuulu Jóhannesson, sem tóku að sér að reyna
að hafa stjórn á hópnum.
Fyrstu viðfangsefnin voru einföld í sniðum
en kórnum óx snemma fiskur um hrygg og fór að koma fram á samkomum
Íslendingasamtaka í Gautaborg. Félaga í kórnum hafa nær eingöngu verið Íslendingar en þó
hefur einn og einn Svíi eða Færeyingur
slæðst í hópinn, en skilyrði fyrir þátttöku þeirra
má segja að sé góð kunnátta á íslensku og verulegur áhugi á landi og þjóð.
Markmið kórsins hefur ætíð verið að gefa Íslendingum í Gautaborg og
nágrenni kost á því að koma saman og syngja og með því að viðhalda
íslenskum menningarþáttum, en einnig er það hlutverk kórsins að kynna
íslenska tónlist erlendis. Kórinn hefur haldið marga sjálfstæða tónleika í Gautaborg og víðar í Svíþjóð,
en líka á Íslandi, í Osló, Kaupmannahöfn, Helsingfors og Borgå í Finnlandi.
Kórinn hefur einnig staðið fyrir Íslandskynningum og komið fram á mörgum slíkum,
t.d. í samvinnu við norrænu félögin.
Fyrir nokkrum árum hófst samstarf Íslenska kórsins í Gautaborg og Lundi.
Kórarnir hafa haft það fyrir sið að koma saman einu sinni á ári,
æfa saman og halda svo sameiginlega tónleika að kvöldi. Aðrir kórar hafa svo
dregist inn í þetta starf undir styrkri stjórn Kristins Jóhannessonar
söngstjóra í Gautaborg og Jóns Ólafs Sigurðarsonar, söngstjóra í lundi.
Hápunktur þessa starfs hingað til [1998] var íslenskt kóramót í Kaupmannahöfn
vorið 1997 með þátttöku kóra frá Gautaborg, Lundi, Kaupmannahöfn, Lundúnum
og Luxemburg.
Kórinn hefur um nokkurra ára skeið tekið þátt í samkomum sem kallast
Julsång i City. Þá syngja ýmsir kórar í dómkirkjunni í miðborg Gautaborgar
í síðustu viku fyrir jól. Hin 1100 manna kirkja troðfyllist hvað eftir annað
og þarna hefur Íslenski kórinn kynnt lög eftir t.d. Sigvalda Kaldalóns,
Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Jón Ásgeirsson.
Verkefnaval kórsins er að stofni íslenskt. Þar er bæði um að ræða eldri og
yngri lög. Jafnframt leitast kórinn við að syngja norræna tónlist,
fyrst og fremst sænska. Í söngferðinni til Íslands sumarið 1998 var tekið mest
mið af þessum þætti verkefnavalsins.Þegar Íslenski söfnuðurinn í Gautaborg var stofnaður 1994 var gerður samningur
við kór og kórstjóra að sjá um tónlistarþáttinn í guðsþjónustunum.
Þetta samstarf kórs og kirkju hefur orðið báðum til góðs.
Við þetta hefur verkefnaval kórsins einnig breikkað nokkuð, en auk þess að
leiða almennan safnaðarsöng syndur kórinn eitt kórverk í hverri messu.
Enda þótt kórinn starfi sem sjálfstæður félagsskapur hefur hann ætíð átt góða
samvinnu við önnur samtöku Íslendinga og tekið þátt í samkomum þeirra.
Kórinn heldur æfingar að jafnaði einu sinni í viku.
Fyrsti formaður kórsins var Már Túliníus, en síðan hafa Ævar Aðalsteinsson,
Ingibjörg Gísladóttir, Kristinn Pétursson, Hilmar Viðarsson
og Pétur Jóhannesson setið sem formenn. (Byggt á Íslandspóstinum frá 1998)
Árið 1989
Kórinn stofnaður. Kristinn og Tuula fengin til að stjórna.
Árið 1991
Sungið fyrir Vigdísi. Kórinn fær reikning. Tónleikar í Oslo og skíðaferð.
[Nánar]
Árið 1992
Byrjað með félagsgjald. Tónleikar í köben. Söngnámskeið.
[Nánar]
Árið 1993
Æfingar haldnar í Villa Odinslund á mánudögum kl 19.30-22.00 [Nánar]
Árið 1994
Æfingar haldnar í Skårskyrka á mánudögum kl 19.00-21.30.
Félagsmenn um 39 auk kórstjóranna Tuula og Kristinn Jóhannesson [Nánar]
Árið 1995
Íslenskt kóramót í Lundi. Sungið fyrir Norræna félagið, hesta og víkinga.
[Nánar]
Árið 1996
Íslenskt kóramót í Gautaborg. Tónleikaferð til Finnlands.
Margir gestir og grillveislur.
Taube dagskrá, Julsång i City, o.fl. Fyrsti geisladiskurinn.
[Nánar]
Árið 1997
Íslenskt kóramót í Kaupmannahöfn.
...
Árið 1998
Kóramót í Lundi. Vel heppnuð söngför til Íslands. Annar geisladiskurinn.
[Nánar]
Árið 1999
Kóramót í Osló. Annar geisladiskurinn {aftur!?}.
Sungið á festivölum o.fl. Víkingasveitin.
10 ára afmæli kórsins fagnað.
[Nánar]
Árið 2000
Heimsóknir kóra frå Aalborg/Lund og Rafveitunni.
[Nánar]
Árið 2001
Æfingar haldnar í Skarskyrka á mánudögum kl 19.00-21.30.
Félagsmenn um 50 auk kórstjóranna Tuula og Kristinn Jóhannesson [Nánar]
Árið 2002
Lundarferð. Heimsókn Kvennakórs Hornafjarðar og Karlakórs eldri Reykjavíkur. Sungið við brúðkaup og Laxness hátíð.
[Nánar]
Árið 2003
Íslenskt kóramót í London. Íslandsdagur í Stockhólmi.
Opið hús til að kynna starfið. Karaoke-kórpartý.
[Nánar]