Íslenski kórinn í Gautaborg
Heim   Sagan   Félagar
 
   
 
 

Annáll 2003 =>

Æfingar haldnar í Skårskyrka á mánudögum 19.00 til 21.30. Ein æfing í júní haldin heima hjá heiðursfélaga kórsins, Brittu Gísladóttur í Kungälv.

Félagar í kórnum voru um 42, auk kórstjórunum Kristni og Tuulu. 6 nýir félagar byrjuðu í kórnum og 8 hættu. Við höfðum opið hús í febrúar til að bjóða inn nýtt söngfólk.

Félagsgjald var 200 kr á önn. Söngstyrkur var veittur 10 manns til að fara í söngtíma. Styrkurinn er 500 kr á mann.

Aðalfundur var haldinn 14. mars á Karin Boyes Götu 3. Var þar meðal annars rætt um kóramót og blýanta á æfingum.

Kórinn söng við messur í Gautaborg, minningarathöfn, Hjärnarp, Julsång i City, á vortónleikum og hópur úr kórnum á Volvo veirslu á Arken.

Kóramót var í London i apríl. Kórinn tók þátt í Íslandsdögum í Stockholmi, 17. júni hátíð í Flunsårsparken og kórmót með söngfólkinu frá Stockhólmi. Kórpartý var haldið í Íslandshúsinu með "karoke".

Kórinn fagnaði 60 ára afmæli kórstjóra.

(Sögunefnd/Ingibjörg P tók saman 2004)

myndir