Staðsetningar
Á laugardaginn verða æfingar og tónleikar í húsnæði Västra Frölundakirkju.
Kirkjan og safnaðarheimilið eru til húsa að Frölunda Kyrkogata 2,
í syðri hluta Gautaborgar.
Sjá kort.
Kirkjuna má þekkja á því að hún er skreytt svolítið eins og
piparkökuhús.
Um 500 metra vestur af kirkjunni liggur svo verslunarmiðstöðin Frölunda torg.
Veislan um kvöldið
verður svo haldin að Skånegatan 20, sem
bent er á á þessu korti (milli Skandinavium og Ullevi).
Þetta er um 10-15 mínútna labb frá miðbænum, fyrir þá sem elska miðbæi.
Gisting
Þeir sem til þekkja mæla með túristapakkanum
Göteborgspaket.
Hann inniheldur gistingu á einhverju af 40 hótelum á góðu verði,
og auk þess sem bónus "Göteborg pass" (meira um það neðar).
Athugið að Västra Frölunda þar sem verjum laugardeginum er svolítið útúr,
þannig að líklega er heppilegra að finna sér hótel nær miðbænum
eða Skånegatan.
Þar er líka þéttni hótela sem mest og bestar almenningssamgöngur
(en stundum leiðinlegt að vera á eigin bifreið).
Fyrir utan þessu 40 ágætu hótel, þá koma eftirfarandi staðir
(af handahófi valdir, ábyrgðar án) t.d. líka til greina:
- Hotell Barken Viking (www.liseberg.se). Skemmtilegur bátur í miðbænum. Frekar ódýrt.
- SPAR hotel (http://www.sparhotel.se/). Nokkuð ódýr og fínt. Annað er í Gårda,
sem er nokkuð nálægt veislu, hitt er í Majorna sem er stuttish frá Frölunda kirkju.
- Quality Hotel Panorama. Nokkuð fínt og ekkert of dýrt. Nálægt veislu.
- City Hotel (www.cityhotelgbg.se). Nálægt miðbæ og veislu. (+4631-7084000).
- Formule 1. Budget hótel skammt frá kirkjunni í Frölunda. (+4631-492400)
Nánari upplýsingar um ofangreint má finna á netinu.
Hér er svo enn ein síðan til að bóka hótel.
Á vefnum hjá
Göteborg.com
eru meiri upplýsingar um hótel og farfuglaheimili.
Á
Gulu síðunum
hjá Eniro er líka listi yfir hótel þar sem maður getur séð staðsetningu á korti.
Hjá
VirtualTourist
má líka finna ýmsar ábendingar um gistingu.
Fyrir utan Göteborg.com, þá má finna upplýsingar um farfuglaheimili hjá
Svenska turistföreningen
og
Sveriges vandrahem i förening.
Fljótt á litið virðast t.d. Slottskogen og Stigbergsliden koma til greina.
Samgöngur
Allmenningssamgöngur við Skånegatan og nágrenni eru hinar bestu,
og samgöngur til Frölunda torg ekki mikið síðri.
Nokkrir
strætóar fara alveg að
kirkjunni.
Strætókortið Maxirabatt fæst í flestum sjoppum og kostar 100 kr.
Það endist u.þ.b. 8 ferðir (fullorðinn stimplar "2" og má þá ferðast í 90 mín).
Gagnleg kennileiti í almenningssamgöngum:
- "Brunnsparken" er barasta í miðbænum.
- "Korsvägen" liggur að Skånegötu, um 400 metra frá veislunni.
- "Frölunda torg" er um 500 metra frá kirkjunni.
Nánar um þetta síðar. Einnig má kynna sér áætlanir hjá
VästTrafik.
Að túristast
Það er fallegt og gaman í Gautaborg.
Ferðamannapassinn
Göteborg pass
hefur svona sniðuga hluti eins og
frítt í strætó, frí bílastæði víða, söfn, o.fl.
Passan er einnig hægt að kaupa einan sér fyrir þá sem vilja ekki hótelpakkan.
Hann gildir í 1 eða 2 sólarhringa frá því að maður byrjar að nota hann.
Á vefnum hjá
Göteborg.com.
eru meiri upplýsingar um allt hvað eina sniðugt í bænum.
Hjá
VirtualTourist
má líka finna alhliða upplýsingar um borgina, gistingu og margt fleira.
Til baka